Opinn kynningarfundur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar
Starfshópur um sóknarfæri Stöðvarfjarðar heldur kynningarfund um tillögur sínar í menningarsal Stöðvarfjarðar í kvöld.Hópurinn var skipaður í nóvember og segir í tilkynningu hans að strax hafi verið lögð áhersla á góða samvinnu við bæjarbúa. Viðbrögð íbúa hafi verið „ánægjuleg og jákvæð" og skipt miklu máli fyrir vinnuna.
Hópurinn skilar á næstu dögum tillögum til bæjarráðs Fjarðabyggðar en þær verða fyrst bornar undir íbúa til rýnis og umræðu á fundinum í kvöld.
Hópinn skipa Ívar Ingimarsson, Rósa Valtingojer og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Fundurinn í kvöld hefst klukkan 20:00 í menningarsal Sköpunarmiðstöðvarinnar.