Hlúum hvert að öðru: Fundur vegna óvæntra dauðsfalla ungmenna á Austurlandi undanfarin ár
Í ljósi voveiflegra atburða og óvæntra dauðsfalla ungmenna á Austurlandi undanfarin ár er boðið til fundar í Hlymsdölum í kvöld þriðjudaginn 21. apríl klukkan 18.Óttar Guðmundsson geðlæknir heldur fyrirlestur. Að því loknu verða samræður í minni hópum. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Fundurinn er haldinn á vegum Áfallateymis Austurlands.