Flutt inn í nýtt hjúkrunarheimili
Búið er að flytja inn í Dyngju, nýtt hjúkrunarheimili á Egilsstöðum sem opnað var í mars um mánuði síðar en áætlað var. Unnið er að ráðstöfun þess húsnæðis sem áður var notað undir hjúkrunarrými aldraðra.Til stóð að flutt yrði inn í Dyngju strax eftir páska en það tafðist meðal annars þar sem töf varð á uppsetningu sjúkrakallkerfis og annars búnaðs.
Nú er hins vegar allt upp sett og flutt var inn á þriðjudaginn í síðustu viku. Nína Hrönn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, segir bæði íbúa og starfsfólk „himinsæla"með fyrirkomulagið.
Heimild er til að nýta allt að 30 hjúkrunarrými í Dyngju. Nína reiknar með að þau verði fullnýtt í haust en íbúum verði bætt við í takt við starfsmannafjölda.
Hjúkrunarrými aldraðra á Egilsstöðum var áður að Lagarási 17 sem er í eigu Ársala, áður Dvalaheimilis aldraðra.
Hluti húsnæðisins verður nýttur fyrir heilsugæslustarfsemi, það er heilsuvernd barna og heimahjúkrun, en sú starfsemi mun vera orðin frekar aðþrengd í núverandi rými.
Restin verður leigð út sem íbúðir til eldri borgara eins og gert var áður en húsnæðið var leigt HSA undir hjúkrunarrými.