Eistnaflug: Þjónustugjaldið stendur bara undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins
Kurr hefur verið meðal tónleikagesta á Eistnaflugi með þjónustugjald sem bætist við miðaverð á hátíðina. Sveitarfélagið Fjarðabyggð ber umtalsverðan kostnað af hátíðarhaldinu.Helgarpassinn kostar 15 þúsund krónur en til viðbótar þarf að greiða 2000 krónur í þjónustugjald til Fjarðabyggðar. Það hefur lagst misjafnlega í gesti hátíðarinnar.
Helga Guðrún Jónasdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar, segir gjaldið vera innheimt til að standa straum af aukinni gæslu, salernisaðstöðu, tónleikaaðstöðu, hreinsun, eftirliti og umsjón af hálfu sveitarfélagsins í kringum hátíðarinnar. Á móti hafi sérstakt gjald á hátíðartjaldstæði verið fellt niður.
Hátíðin hefur vanalega farið fram í Egilsbúð en var nú færð yfir í íþróttahúsið í Neskaupstað. Bæði gestum og tónleikum hefur fjölgað verulega á síðustu ár.
Gjaldið var auglýst á heimasíðu Eistnaflugs en virðist samt hafa komið mörgum tónlistargestum á óvart.
Helga Guðrún segir þjónustugjaldið yfirleitt vera innifalið í miðaverði. Sú leið hafi ekki verið valin nú en þar sem gjaldtakan sé tiltölulega ný af nálinni en fyrirkomulag hennar sé enn í mótun.
Hún ítrekar að gott samstarf sé milli Fjarðabyggðar og hátíðarhaldara á Eistnaflugi. Gjaldið sé aðeins upp í hluta þeirrar vinnu sem sveitarfélagið leggi til við hátíðina.
„Skipulagning af hálfu sveitarfélagsins er umtalsverð ásamt utanumhaldi á þeim þáttum sem snúa að innviðum bæjarins.
Samhliða rekstri á salernum, gæslu á tjaldsvæði og í bænum, sorphirðu, þjónustu á tjaldsvæði og öðrum beinum kostnaði, fylgir stórhátíð sem þessari umtalsverður óbeinn kostnaður, s.s. vegna gjaldfrjálsra afnota af íþróttahúsi og öðru húsnæði í eigu sveitarfélagsins, umsýslu og síðan aðkomu starfsmanna sveitarfélagsins með ýmsum hætti.
Á heildina litið stendur þjónustugjaldið ekki undir þessum kostnaði nema að hluta til. Beinir styrkir eða fjárstuðningur hafa því ekki komi til tals í ljósi þessarar umtalsverðu beinu og óbeinu kostnaðarhlutdeildar sveitarfélagsins."