Grátt í fjöllum í morgun
Afar kuldalegt var um að litast á Austfjörðum í morgun en gránað hafði í hæstu fjallatinda. Snjóföl var meðfram veginum yfir Fjarðarheiði og enn hvítara í Gagnheiði.
Samkvæmt tölum frá Veðurstofunni var hiti um frostmark á Fjarðarheiði um klukkan átta í morgun.
Sömuleiðis var grátt í tinda við Oddsskarð og fjöllin innst í Reyðarfirði.
Á Fjarðarheiði upp úr klukkan níu í morgun.