Hafna því að annað en fagleg sjónarmið ráði för í jarðgangamálum
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mótmælir því að annað en fagleg sjónarmið ráði för í stefnumótun fyrir jarðgangagerð á Austurlandi. Ráðið ítrekar enn fremur að austfirsk sveitarfélög standi við þau áherslur sem þau hafi lagt á sínum sameiginlega vettvangi.Þetta kemur fram í ályktun frá síðasta fundi ráðsins á mánudag.
Í henni er bent á að á aðalfundi Samband sveitarfélaga á Austurlandi í fyrra hafi verið samþykkt samhljóða að næsta verkefni í jarðgangagerð yrðu göng til Seyðisfjarðar undir Fjarðarheiði og að jafnframt yrði sett fjármagn í rannsóknir á gangakostum til tengingar miðsvæðis Austurlands.
„Í umræðu undanfarinna daga, m.a. í fjölmiðlum, hefur því verið haldið fram að annað en fagleg sjónarmið ráði för í stefnumótun varðandi gangagerð á Austurlandi.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mótmælir þessu og bendir á að þessi sameiginlega áhersla sveitarfélaganna byggi á gögnum og úttekt viðurkenndra og óháðra fagaðila á þeim valkostum sem eru í stöðunni og unnin var fyrir Vegagerðina," segir í ályktuninni.
Ráðið vísar þar meðal annars til skýrslu sem verkfræðistofan EFLA vann fyrir Vegagerðina árið 2011 í tengslum við Fjarðarheiðargöng en þar var sjónum beint að hugsanlegum munnasvæðum ganganna. Þar er reyndar fjallað um fleiri gangakosti á Austurlandi og komist að þeirri niðurstöðu að hringtenging í gegnum Fjarðarheiði skili mestu fyrir Austurland í heild.
Austurfrétt ræddi fyrir helgi við tvo sérfræðinga í jarðgangagerð sem sögðu fyrstu kannanir á berglögum í Fjarðarheiði benda til þess að aðstæður væru erfiðar. Lengd ganganna veldur einnig erfiðleikum.