Einn kaldasti júlímánuður sögunnar
Nýliðinn júlímánuður er sá þriðji kaldasti sem mælst hefur á Egilsstöðum. Úrkoma á svæðinu hefur á móti verið meiri en í meðalári.Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar fyrir tíðarfar í júlí.
Meðalhiti á Egilsstöðum var 7,6°C í júlí sem er um þremur gráðum kaldara en í meðalári. Samfelldar mælingar hófust þar árið 1955 og hefur júlí aðeins tvisvar mælst kaldari, árið 1970 og 1993.
Á Dalatanga var meðalhitinn 6,9 gráður, um tveimur stigum kaldari en undanfarinn áratug. Mánuðurinn var einnig kaldari á Teigarhorni en gengur og gerist, meðalhitinn 7,7 gráður, tæpum tveimur gráðum lægri en í meðalári.
Í samantektinni segir að júlímánuður hafi almennt verið kaldur en einkum í efstu byggðum norðaustan- og austanlands. Í Möðrudal mældist hiti 4,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára, meðalhitinn var þar 5,9 stig.
Lægsti meðalhitinn var á Gagnheiði, 1,6 stig sem er lægsti meðalhiti sem vitað er um í júlí hér á landi.
Þá segir að úrkoma hafi verið yfir meðallagi á Norðaustur- og Austurlandi en á Vesturlandi var sérstaklega þurrt.