Veginum yfir Oddsskarð lokað vegna mikillar hálku
Veginum yfir Oddsskarð var lokað eftir hádegi. Mikil hálka er á veginum og hvasst þannig að bílar lentu út af veginum. Búið er að fresta íbúafundi sem vera átti á Norðfirði í kvöld.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fóru 2-3 bílar út af veginum í kringum hádegið. Engin slys urðu á fólki en ákveðið að loka veginum.
Mikill krapi og hálka er á veginum og við bætast hvassviðri og sviptivindar.
Boðað hafði verið til íbúafundar á Norðfirði í kvöld um framtíð sjúkrahússins og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar en honum hefur verið frestað. Ný tímasetning liggur ekki enn fyrir.