Ábyrgð að senda starfsmenn frá höfuðborgarsvæðinu út á land
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir atvinnurekendur á að gæta fyllstu varúðar þegar starfsmenn eru sendir til starfa frá höfuðborgarsvæðinu út á land.Þetta kemur fram í tilkynningu dagsins frá aðgerðastjórninni.
Þar kemur fram að nokkuð hafi verið um að hópar stafsmanna frá stórum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu komi austur til tímabundinna verkefna. Í slíkum tilfellum sé sérstaklega brýnt að gæta að hópaskiptingum og skipuleggja þau verk sem unnin eru með sóttvarnir í huga.
Þannig verði fáir útsettir ef smit kemur upp, frekar en heilu fyrirtækin, stofnanirnar eða landshlutinn. Í ljósi ástandsins felist ábyrgð bæði í að senda og taka á móti slíkum hópum.
„Gætum að okkur, hólfaskiptum þar sem það á við og höldum áfram öflugum persónulegum sóttvörnum, fjarlægðarmörkum, grímunotkun og handþvotti. Munum að spritta snertifleti. Höldum áfram að gæta fyllstu varúðar og gerum það saman,“ segir í tilkynningunni.
Enginn er með virkt smit á Austurlandi en þrír einstaklingar í sóttkví.