Íbúafundur á Stöðvarfirði í kvöld
Í kvöld klukkan 20:00, verður haldinn fundur á Veitingastofunni Brekkunni á horni Fjarðarbrautar og Bankastrætis á Stöðvarfirði um þau mál sem nú brenna á Stöðfirðingum.
Þar má nefna fyrirhugaða lokun banka og pósthúss á Stöðvarfirði, húsnæðiseklu og atvinnumál.
Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í uppbyggilegum samræðum um framtíð Stöðvarfjarðar en til fundarins verður boðið sérstaklega þingmönnum kjördæmisins, bæjarstjórn Fjarðabyggðar og fulltrúum Landsbankans og Íslandspósts.