Björgunarsveitir á Austurlandi kallaðar út
Rúmlega átta í morgun voru björgunarsveitir á Austurlandi kallaðar út vegna göngumanns sem óskaði eftir aðstoð í grennd við Snæfell. Svartaþoka er á svæðinu sem olli því að göngumaðurinn villtist.Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að björgunarsveitir hafa staðsett viðkomandi og eru á leið að honum.
Nokkuð hefur verið um útköll hjá björgunarsveitum síðasta sólarhringinn þar sem m.a. var óskað eftir aðstoð vegna slyss á Kjalvegi og göngufólks í sjálfheldu sem óskuðu eftir aðstoð.