Blængur með 150 milljóna króna aflaverðmæti

Frystitogarinn Blængur NK sigldi inn á Norðfjörð í blíðunni í gær að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Aflaverðmætið nam um 150 milljónum kr. eftir 21 dags veiðiferð.

Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að skipið lá út á firðinum í gærdag þar sem það var þrifið hátt og lágt en löndun hófst eftir hádegi í dag.

„Þessi veiðiferð gekk vel, held ég að óhætt sé að segja. Við fórum út að kvöldi 21. mars þannig að veiðiferðin var 21 dagur höfn í höfn," segir Theodór Haraldsson skipstjóra í samtali á vefsíðunni aðspurður um hvernig túrinn hefði gengið.

"Almennt aflaðist vel og við komum með stútfullt skip. Aflinn er 675 tonn upp úr sjó eða 21.000 kassar að verðmæti 150 milljónir króna.

"Uppistaða aflans er djúpkarfi, gullkarfi og gulllax en einnig er dálítið af ufsa, ýsu og þorski. Við byrjuðum á að reyna við grálúðu hérna fyrir austan en fiskuðum okkur síðan suður eftir. Eftir það vorum við mest á suðvesturmiðum; Selvogsbanka, Skerjadýpi og Fjöllunum.

Theodór segir einnig að aflinn hafi verið jafn og góður allan túrinn og veðrið var að mestu prýðilegt.

"Við fengum einn bræludag. Það má segja að þetta hafi verið fínasti túr og það er í sjálfu sér ekki yfir neinu að kvarta," segir Theódór.


Ráðgert er að Blængur haldi til veiða á ný síðdegis á föstudag.

Mynd: Smári Geirsson/SVN

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.