Borgarfundur um málefni HSA
Samband sveitarfélaga á Austurlandi boðar til opins borgarafundar um málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum sunnudaginn 10. október klukkan 15:00.
„Í fjárlagafrumvarpi sem lagt hefur verið fram er boðaður gríðarlegur niðurskurður á fjárframlögum til HSA. Ef af þessum niðurskurði verður er ljóst að verið er að færa þjónustu í heilbrigðismálum á Austurlandi marga áratugi aftur í tímann og vega með alvarlegum hætti að búsetuskilyrðum á Austurlandi,“ segir í tilkynningu SSA.
„Stjórn SSA hefur áður samþykkt harðorð mótmæli gegn boðuðum niðurskurði og hvetur nú alla Austfirðinga til að fjölmenna á fundinn, sýna samstöðu og mótmæla þessum áformum ríkisvaldsins.“