Búast við niðurstöðum sýnatöku seint í kvöld
Nær allir þeir sem fóru í sóttkví eftir að Covid-19 smit kom upp á Austurlandi á þriðjudag, fóru í sýnatöku í morgun. Niðurstöðu hennar er að vænta seint í kvöld. Þangað til verða einstaklingarnir í sóttkví.Alls eru 38 einstaklingar í sóttkví sem stendur í fjórðungnum og var sýni tekin úr þeim flestum í morgun. Fleiri smit hafa ekki greinst enn.
Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands eru íbúar fjórðungsins minntir á að gæta að orðum sínum og framkomu í aðstæðum sem þessum.
Enginn vilji smitast og jafnvel þótt ýtrustu aðgæslu sé gætt geti komið upp smit. Þetta kalli að samfélagið sýni þeim sem smitast samkennd og tillitssemi í orðum og athöfnum.
Viðbrögð við smiti segi mikið um hverrar gerðar fólk sé og þar hafi Austfirðingar staðið sig vel síðusut mánuði. Aðgerðastjórnin þakkar fyrir það um leið og hún treystir á áframhaldandi samstöðu því þannig verði sigrast á faraldrinum.