Búið að opna vegina um Fagradal og Öxi
Búið er að opna vegina um Fagradal og Öxi og einnig Breiðdalsheiði sem var lokuð um stund í dag.Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir að á veginum um Fagradal sé hálka og hvassvirði. Á Öxi er snjóþekja og mjög hvasst. Og á Breiðdalsheiði er hálka og mjög hvasst.