Eiginlegu hreinsunarstarfi á Seyðisfirði lokið - Myndir
Tæpar tvær vikur eru síðan eiginlegu hreinsunarstarfi í kjölfar skriðufallanna á Seyðisfirði í desember lauk. Enn er þó unnið í framkvæmdum á svæðinu. Ný brú yfir Brúará hefur vakið athygli.Miklar breytingar hafa orðið frá því stóra skriðan féll 18. desember, eins og meðfylgjandi myndir sem teknar voru síðasta laugardag, bera með sér.
Jón Egill Sveinsson, sem stýrt hefur aðgerðum á Seyðisfirði fyrir hönd Múlaþings, segir eiginlegu hreinsunarstarfi lokið og bráðavörnum að mestu einnig.
Byrjað er að vinna í uppgræðslu með að dreifa fræjum og áburði. „Við höfum sáð í skriðusárin frá brún niður að vegi. Þetta er ekkert sérstaklega frjósamur jarðvegur og því tekur tími að koma í hann lífi en það tekst,“ segir Jón Egill.
Hann segir vinnuna þessa dagana snúast um frágang í gegnum Framtorfuna og uppgræðsluna. Meðal annars stendur til að nýta mold úr knattspyrnuvellinum, sem tekinn verður undir íbúabyggð, til að efla uppgræðslusvæðin.
Frágangurinn á Framtorfunni tengist miklum framkvæmdum við farveg Búðarár. Ný brú er komin yfir ána á Hafnargötu. „Þetta er einingabrú frá MVA, í henni er enginn samsteypa. Hún var reist á fjórum dögum, kom nánast tilbúin og var hífð niður í farveginn til lokasamsetningar.
Hún hefur vakið athygli Vegagerðarinnar því aðferðin styttir framkvæmdatíma gríðarlega. Fjórum og hálfum degi eftir að vegurinn var settur á hjáleið var hægt að keyra yfir brúna. Vegmálastjóri kom og skoðaði hana um daginn.“
Jón Egill segir að nú sé verið að lagfæra vegslóð sem liggur upp í Botna til að geta komið tækjum þangað upp í sumar. Framundan er áframhaldandi uppgræðsla og frágangur á Framtorfunni en þess er vænst að framkvæmdum ljúki upp úr miðjum júní.