Orkumálinn 2024

Einn í einangrun vegna landamærasmits

Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi. Um landamærasmit er að ræða og tengist komu tuttugu og fimm manna hóps með Norrænu fyrir þremur vikum síðan.

Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar á Austurlandi. Þar segir að fjörutíu farþegar komu með Norrænu í gærmorgun. Þeir fóru allir í sýnatöku og fengu leiðbeiningar um sóttkví í framhaldinu. Þrír farþeganna þáðu boð um gistingu á sóttkvíarhóteli á Hallormsstað. Aðrir voru með gistingu á eigin vegum.

Sýnatökur í fjórðungnum ganga vel og eru milli tíu og tuttugu sýni tekin á dag. Eru íbúar í því sambandi sem fyrr hvattir til að halda sig heima og fá leiðbeiningar um sýnatöku í síma 1700 ef veikinda verður vart.

Nýjar sóttvarnareglur gilda frá 16. apríl næstkomandi. Áfram er mikilvægt er að við gætum að okkur og göngum ekki svo hratt um dyr gleðinnar að hrösun verði á síðasta spelinum. Stutt er eftir í baráttunni. Klárum hana saman, að því er segir á vefsíðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.