Orkumálinn 2024

Endurhæfingarteymi sett á fót hjá HSA

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hefur sett á fót þverfaglegt endurhæfingarteymi sem mun styðja við og efla endurhæfingu fyrir íbúa á Austurlandi.

Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins. Þar segir að stofnun teymisins sé liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar um endurhæfingu til fimm ára sem heilbrigðisráðherra kynnti í lok síðasta árs. Áætlunin gerir ráð fyrir að stofnuð verði endurhæfingarteymi í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og er teymið við HSA það fyrsta sem tekur til starfa

Endurhæfingarteymið við HSA er þverfaglegt, mannað endurhæfingarlækni, sjúkraþjálfurum, félagsráðgjafa og iðjuþjálfa. Fyrst um sinn mun teymið sinna einstaklingum með þráláta verki vegna stoðkerfisvanda.

„Markmiðið er að aðstoða fólk við að auka virkni sína og vellíðan þannig að einstaklingar séu betur í stakk búnir að takast á við áskoranir daglegs lífs. Það er mat HSA að efling endurhæfingar sé eitt af sóknarfærum heilbrigðisþjónustu á landinu öllu enda rímar það vel við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem og heilsueflingu sem mikil þörf er á að efla vítt og breitt“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri HSA í samtali á vefsíðuni..

"Það er vaxandi vitund meðal fagfólks og í samfélaginu öllu um mikilvægi forvarna og endurhæfingar. Þetta á að vera hluti af þjónustu opinbera heilbrigðiskerfisins með áherslu á að grípa inn í aðstæður fólks þegar endurhæfingar er þörf. Með því móti getum við aukið lífsgæði fólks og fyrirbyggt eða dregið úr líkum á því að fólk tapi færni eða getu til virkrar þátttöku í daglegu lífi. Síðast en ekki síst tryggjum við með þessu móti sem jafnastan aðgang fólks að þessari mikilvægu þjónustu óháð búsetu og efnahag,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.