Enn harðara átak gegn lúpínu í Fjarðabyggð næsta sumar
Tekist hefur að halda útbreiðslu lúpínu í fólksvöngum Fjarðabyggðar ágætlega í skefjum síðustu árin en sveitarfélagið ætlar í enn stærra átak næsta sumar.
Þetta staðfestir umhverfisstjóri Fjarðabyggðar, Anna Berg Samúelsdóttir, við Austurfrétt en dreifing lúpínu hefur verið viðvarandi og sífellt stærra vandamál á stórum svæðum Austanlands og ekki hvað síst í fjörðunum.
Fjarðabyggð hefur farið í sérstakt átak gegn lúpínunni áður með ágætum árangri en baráttan flókin því lúpínan dreifir sér hratt og það yfirleitt í miklum veldisvexti. Taldist Náttúrustofu Austurlands til að frá árinu 1998 til 2011 ársins hafi dreifing lúpínu aukist tuttugufalt og töluvert hefur bæst í síðan þá.
Anna segir að næsta sumar verði farið á ný í átak og það harðara en verið hefur. „Við höfum í fólkvöngunum náð að halda útbreiðslu og nýjum sáningum lúpínunnar í skefjum, stefnum að stærra átaki næsta sumar og þá vonandi ganga meira á þessar breiður sem eru í friðlöndunum. En næsta átak snýr einna helst að friðlýstum svæðum.“