Fjögur handtekin fyrir að rækta kannabis
Fjórir einstaklingar voru handteknir í gær þegar lögregla stöðvaði kannabisræktun í Fellabæ og á Breiðdalsvík.Í tilkynningu lögreglunnar segir að tveir karlar og tvær konur hafi verið handtekin í þágu rannsóknarinnar sem sé enn í gangi.
Ekki er ljóst nákvæmlega hversu mikið magn efna var haldlagt en það hafi verið töluvert. Að auki var lagt hald á tæki sem tengjast framleiðslunni, fjármuni, gróðurlampa og búnað.
Farið var í fleiri húsleitir sem tengjast málunum í sameiginlegri aðgerð lögreglunnar á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.