Fleiri smáspýjur sjáanlegar undir Bjólfi
Greina má fleiri örskriður í hlíðinni í norðanverðum Seyðisfirði en þær tvær sem fundust í gær, ef vel er að gáð. Þær eru þó víðsfjarri því að ná niður í byggð.Skriðurnar eru vandfundar með beru auga en er hægt að sjá í gegnum kíki ef vel er að gáð. Þær eru flestar við svokallaða Kálfabotna.
Vatn er nú sjáanlegt í flestum lækjarfarvegum á Seyðisfirði. Heldur hefur þó dregið úr þeim frá í gær samhliða því sem rigningin hefur minnkað.
Samkvæmt yfirliti frá Veðurstofu Íslands var úrkoma á Seyðisfirði undanfarinn sólarhring um 40 mm, heldur meiri í Neðri-Botnum en í bænum. Í Vestdal mældust um 30 mm.
Kólnað hefur í veðri og snjólínan færst neðar. Veðurstofan býst við að sú þróun haldið áfram og frostmarkshæð verði í 50-100 annað kvöld.
Smávægileg hreyfing hefur sést á Búðarhrygg og í kringum stóra skriðusárið, eins í Þófa og Þófabrún. Ekki þykir ástæða til rýminga en umferð við lækjar- og skriðufarvegi þykir ekki æskileg. Girt var fyrir umferð á göngustíg upp með Búðará að fossinum í dag.
Vatnshæð í borholum er fremur há en hefur lækkað eða staðið í stað síðan draga fór úr úrkomu klukkan sex í morgun.
Á aðalmyndinni smá sjá ummerki um tvær smáspýjur innan við Kálfabotna. Aðrar myndir sýna umhverfið á Seyðisfirði eftir hádegi í dag.