Fólk hugi að persónubundnum sóttvörnum

Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi minnir fólk á að sinna vel persónubundnum sóttvörnum. Mikill fjöldi COVID smita hefur greinst að undanförnu og voru þau t.d. 123 talsins í fyrradag.

„Eins og öllum er kunnugt er mikill vöxtur í fjölda kórónuveirusmita og eru smitin á víð og dreif um landið. Hátt hlutfall greinist utan sóttkvíar og því viðbúið að aukning verði á smitum næstu daga,“ segur í tilkynningu frá aðgerðastjórninni.

„Aðgerðastjórn vill minna fólk á að sinna persónubundnum sóttvörnum en það er eitt öflugasta vopnið í baráttunni við veiruna. Þá mælist aðgerðarstjórn til að starfsfólk og viðskiptavinir í verslunum og á veitingastöðum noti grímur og virði fjarlægðarmörk.
 

Aðgerðastjórn brýnir fyrir fólki að bóka tíma í sýnatöku ef það finnur fyrir einhverjum einkennum. Þá gildir áfram að þeir sem eru með öndunarfæraeinkenni eiga að vera í sambandi við heilsugæslu í gegnum síma, alls ekki mæta á heilsugæslustöðvar ef minnsti grunur leikur á kórónuveirusmiti.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.