Formaður svæðisfélags segir sig úr VG: Flokkurinn stefnir á að setja mig á hausinn
Ásmundur Páll Hjaltason, sem verið hefur formaður svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs á Austfjörðum undanfarin tvö ár hefur sagt sig úr flokknum. Hann segir flokkinn í dag allt annan en þann sem hann studdi á sínum tíma.
Ásmundi, sem var í níunda sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi í seinustu þingkosningum, finnst flokkurinn hafa gefið of mikið eftir í stefnumálum sínum, til dæmis með umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Skattahækkanir leggjast einnig illa í hann.
„Ég get ekki sinnt þessari samfélagsþjónustu fyrir flokk sem hefur það efst á sinni stefnuskrá að setja mig á hausinn. Þetta lið poppar upp rétt fyrir kosningar en þess á milli verð ég ekki mikið var við Steingrím J. né Þuríði svo dæmi séu tekin,“ sagði Ásmundur í samtali við Austurgluggann.
Hann segir mikla ólgu innan flokksins, víðar en meðal hinna „svokölluðu þremenninga.“
Hrafnkell F. Lárusson, formaður svæðisfélags VG á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði, segir stöðu flokksins þar sterka. Hann hafi ekki orðið var við annað en mikla samstöðu eftir að félagsmenn stillti saman strengi sína á seinasta ári.