Franskir dagar gengu vel - MYNDIR
Bæjarhátíðin Franskir dagar á Fáskrúðsfirði gekk vel að sögn þeirra sem Agl.is hefur rætt við. Margt fólk var á ferðinni og skemmtiatriðin fjölbreytt.
Lögreglan lagði sérstaka áherslu á löggæslu í kringum hátíðina. Hún segir allt hafa farið vel fram og ekki mikil afskipti höfð af fólki. Tvær tilkynningar um líkamsárásir bárust en ekki liggur fyrir um kærur.
Einn
var stöðvaður aðfaranótt laugardagsins eftir ofsaakstur í
Fáskrúðsfirði. Lögreglan hafði elt hann og varð að lokum að keyra utan í
bifreið hans til að stöðva ferðina. Viðkomandi er grunaður um ölvun við
akstur og má eiga von á ökuleyfissviptingu og mjög háum fjársektum.
Myndir: Austurglugginn/Jón Knútur