Færsla Hringvegar verður skoðuð enn frekar
Vegagerðin skoðar hvort færa eigi þjóðveg númer eitt, Hringveginn, frá Breiðdalsheiði og Skriðdal yfir á Suðurfjarðaleið og Fagradal. Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur til þess en bæjarráð Fljótsdalshéraðs leggst gegn því.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir það hafa verið til skoðunar árum saman að færa Hringveginn yfir á firðina og það verði skoðað enn frekar í ljósi ályktunar sem bæjarráð Fjarðabyggð sendi nýverið frá sér og Agl.is greindi frá í vikunni.
Hann segir veginn um firðina fullnægja öllum kröfum sem gerðar séu til Hringvegarins enda sé fjölbreytni hans nokkuð mikil.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hvetur til enn frekari uppbyggingar á núverandi Hringvegi frekar en hann verði færður.