Orkumálinn 2024

Fundu hundruða þúsunda tonna loðnutorfu

„Við komum hérna í svakalega torfu. Hún er tæpar fimm sjómílur á lengd og þétt. Hún er frá kili og niður undir botn. Hér er sko alvöru vertíðarganga á ferðinni. Þetta hljóta að vera nokkur hundruð þúsund tonn,“ segir Geir Zoëga skipstjóri á grænlenska uppsjávarskipinu Polar Amaroq í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq landaði fullfermi af frystri loðnu í Hafnarfirði í gær. Að löndun lokinni ákvað Geir skipstjóri að kanna hvort loðnu væri að finna í Jökuldýpinu norðvestur úr Garðskaga. Hann þurfti ekki að leita lengi.

„Við erum nú að mæla þessa risalóðningu og síðan ætlum við að svipast frekar um. Þessi ganga hér verður væntanlega komin inn á Breiðafjörð um helgina og mun líklega hrygna þar í næstu viku,“ segir Geir.

„Það fréttist af loðnu víða þessa dagana. Það virðist vera loðna héðan frá Faxaflóanum og austur með allri suðurströndinni. Það hefur til dæmis verið mikil loðna í Háfadýpinu. Síðan hafa borist fréttir af loðnu fyrir norðan land og nú mun Bjarni Sæmundsson vera að kanna stöðuna þar. Þetta er alvöru, það fer ekkert á milli mála.“

Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá mynd af torfunni (rauði liturinn) eins og hún birtist á skjám í brúnni á Polar Amaroq.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.