Orkumálinn 2024

Fundu stóra kynþroska loðnu norðaustur af Kolbeinsey

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hefu fundið stóra kynþroska loðnu norðaustur af Kolbeinsey. Loðnan finnst þar í töluverðu magni á um 180 mílna breiðu belti.

Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að Polar Amaroq hélt til loðnuleitar sl. föstudag, en það eru Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sem standa fyrir leitinni. Mun leitin taka tæplega viku.

Á vefsíðunni var rætt við Geir Zoëga skipstjóra skömmu fyrir hádegi í dag en þá var verið að taka sýni norðaustur af Kolbeinsey.

„Þessi leiðangur er farinn í nánu samráði við Hafrannsóknastofnun en þó er enginn fulltrúi frá stofnuninni um borð. Við tökum sýni og könnum þau og frystum einnig sýni fyrir stofnunina. Hafrannsóknastofnun fær öll gögn leiðangursins þannig að allt er gert eins og um hefðbundna vetrarmælingu sé að ræða.“ segir Geir.

„Það var full ástæða til að leita núna enda hafa borist heilmiklar loðnufréttir frá togurum sem hafa verið að veiðum á svæðinu. Við fundum strax loðnu. Hún var dálítið blönduð fyrst en fljótlega var einungis um að ræða stóra kynþroska loðnu. Það hefur semsagt verið loðna á 180 sjómílna belti sem við höfum nú farið yfir og inn á milli hafa verið góðar torfur.“

Geir segir að loðnan komi að norðan og virðist vera að ganga upp að landinu í verulegu magni. Þetta ætti ekki að koma á óvart og er í góðum takti við haustmælinguna 2019.

„Ég hef verið bjartsýnn á loðnuvertíð í vetur og nú hef ég góð rök fyrir bjartsýninni. Þetta lítur bara afskaplega vel út,“segir Geir.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.