Fylgjast með úrkomunni eystra - Myndir
Veðurstofan fylgist með úrkomu og áhrifum hennar á vatnsmagn í jarðvegi og ám á Austurlandi. Flóð stendur enn í Grímsá og vatnsborð í Lagarfljóti hækkar enn meðan sjatnað hefur í flestum öðrum ám sem uxu í nótt.Samkvæmt mælum Orkusölunnar, sem rekur virkjunina í Grímsá, tók vatnsyfirborð árinnar að hækka hratt upp úr miðnætti. Hámark flóðsins í ánni virðist hafa verið milli 9 og 10 í morgun en síðan hefur lítið sjatnað í ánni.
„Hún er enn mórauð og beljandi,“ segir Pálmi Sigurðsson, stöðvarstjóri. Rennsli um yfirfall virkjunarinnar í morgun mældust 380 rúmmetrar á sekúndu.
„Grímsáin getur komið á óvart. Alla jafna er hún látlaus og falleg en síðan getur hún orðið svona beljandi á ótrúlega stuttum tíma.“ Tvær gröfur stóðu í árfarveginum neðan brúarinnar yfir ána. Önnur þeirra fór nánast á kaf og telja má að hún sé mikið skemmd. Hjá hinni hefur aðeins flotið yfir beltin og hefur hún því trúlega sloppið mun betur.
Talsverð hækkun í Lagarfljóti
Samkvæmt mælum Veðurstofu Íslands varð mikill vöxtur í Fossá í Berufirði og Geithellnaá í Álftavirði en sá vöxtur var búinn um hádegið. Vatnshæð í Lagarfljóti við Egilsstaði hefur hækkað um rúma 30 sm. síðan í morgun. Þar er fylgst með stöðunni.
„Rigningin kemur í gusum en síðan stoppar á milli þannig vatnið sjatnar aðeins,“ segir Esther Hlíðar Jensen, sérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofunnar. Þar er meðal annars fylgst með rennslinu í fljótinu.
Fylgst með hreyfingum á Seyðisfirði
Vatnavextirnir stafa af miklum rigningum á Austurlandi undanfarna daga. Samkvæmt yfirliti frá Veðurstofunni er uppsöfnuð úrkoma á Seyðisfirði undanfarna viku tæpir 200 mm. Vatnshæð í borholum bæði þar og á Eskifirði er há þótt hún hafi lækkað aðeins um helgina.
Á Seyðisfirði varð hreyfing á hrygg við Búðará sem einnig var á hreyfingu fyrir rúmu ári. Hreyfingin nú var 5-15 mm meðan hún var um metri á nokkrum vikum í fyrra. Hún virðist hafa stöðvast og er ekki talin ástæða til aðgerða. Smá hreyfing mældist á radarmælingum í Þófa. Engar tilkynningar hafa borist um skriður eystra.
Áfram er spáð talsverðri rigningu næsta sólarhringinn. Eitthvað á að draga úr henni á morgun en aðfaranótt miðvikudags er viðbúið að bæti aftur í. Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar í dag að náið væri fylgst með stöðunni.
Þar er verið að keyra nýtt spálíkan við hlið eldra líkans. Mismunur er í úrkomuákefð í líkönunum þótt endanlegt úrkomumagn sé hið sama.