Fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi rísa á Borgarfirði eystri
Verið er að reisa fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi á Borgarfirði eystri. Bílalest kom með húsin til Borgarfjarðar í nótt.Um er að ræða átta húseiningar sem verða að tveimur parhúsum með 4 íbúðum.
„Þetta eru töluverð tímamót hér hjá okkur þar sem nær ekkert hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á Borgarfirði undanfarin 36 ár,“ segir Jón Þórðarson fulltrúi sveitarstjóra á Borgarfirði eystri.
„Við ætluðum upphaflega að byggja þessi hús í fyrrasumar en fengum ekki nein tilboð í þá framkvæmd sem við gátum sætt okkur við,“ segir Jón. „Því ákváðum við að kaupa tilbúnar húseiningar frá Litháen.“
Fram kemur í máli Jóns að sennilega verður lokið við að reisa húsin fyrir næstu helgi. Þá á eftir að setja inn lagnir og leiðslur og ganga frá öllu innandyra.
Jón segir að um leiguhúsnæði verði að ræða á vegum Borgarfjarðar eystri og að þegar séu komnar umsóknir um allar íbúðirnar. „Það stefnir í umframeftirspurn eftir þessu húsnæði,“ segir hann.
Aðspurður um hvenær fyrstu íbúarnir munu flytja inn segir Jón að það væri ánægjulegt ef slíkt gerist fyrir áramótin.
Mynd: Guðrún Ástrós Bergsveinsdóttir.