Gangnamálin fyrirferðamikil fyrstu dagana
Aðalheiður Borgþórsdóttir tók við starfi bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar í byrjun vikunnar. Hún segist hlakka til að takast á við starfið þótt mikið af verkefnum bíði hennar.„Mér líst vel á þetta. Þetta er dálítið yfirþyrmandi til að byrja með, það er mikið af verkefnum sem maður þarf að henda sér í og margt að læra,“ segir Aðalheiður.
Aðspurðu segir hún að barátta Seyðfirðinga fyrir jarðgöngum sé fyrirferðamest en samkvæmt samgönguáætlun sem lögð var fram á Alþingi í síðustu viku verður ekki byrjað á þeim næstu tíu ár.
„Við erum að reyna að tala við yfirvöld um að hnika þeim áfram. Við trúum ekki að þeim verði seinkað eins og fram kemur í samgönguáætlun.“
Af öðrum helstu verkefnum nefnir Aðalheiður Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í næstu viku og fjárhagsáætlunargerð, auk þess sem fyrstu dagarnir hafa farið í að hitta starfsfólk og kynnast starfi sveitarfélagsins. Þá sat Aðalheiður sinn fyrsta bæjarráðsfund í gær.
Með ráðningu Aðalheiðar í lok júlí var brotið blað í sögu kaupstaðarins því hún er fyrsta konan til að verða bæjarstjóri á Seyðisfirði. Þá er hún önnur af tveimur konum sem gegna stöðu framkvæmdastjóra hjá sveitarfélögunum sjö á Austurlandi.