Gul veðurviðvörun fyrir Austurland í nótt
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland að Glettingi í nótt. Gildir viðvörunin frá því klukkan 22 í kvöld og til klukkan 11 á morgun.Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á þessu tímabili sé spáð norðan 10-18 m/s, hvassast við ströndina, með snjókomu og skafrenningi og lélegu skyggni. Færð gæti spillist, einkum á fjallvegum.
Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir að nú sé snjóþekja á Vatnsskarði eystra.