Hálkublettir víða á Austurlandi
Hálkublettir eru víða á Austurlandi en helst á fjallvegum að því er segir á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Á vefsíðunni segir að hálka sé á Fagradal, Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð er á Hellisheiði eystri.