Orkumálinn 2024

HB Grandi biðst afsökunar á grútarmengun á Vopnafirði

vopnafjordur.jpgHB Grandi hefur fengið verkfræðistofuna EFLU til að gera úttekt á fráveitumálum uppsjávarfrystihúss fyrirtækins á Vopnafirði. Grútarmengun hefur valdið íbúum Vopnafjarðar óþægindum í sumar.

 

Í bréfi sem sent var íbúum segir að fita og grútur frá frystihúsinu hafi borist í fjörur í Vopnafirði. Mengunin hafi valdið íbúum óþægindum og beðist er velvirðingar á því.

"Ástæða þess hafa verið bilanir í búnaði, dælum o.þ.h. og að frárennsli var mun meira en menn áttuðu sig á. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið gert til að hemja frárennslislögn virðist sem enn og aftur leiki endi hennar lausum hala.

Það hefur aldrei verið unnið annað eins magn af síld og makríl í uppsjávarfrystihúsinu og nú í sumar. Nú er t.d. búið að frysta rúm 7.500 tonn af afurðum á móti 1.200 tonnum í fyrra. Við þessa vinnslu er að falla til gífurlegt magn af fitu og hafa tæki okkar og úrræði greinilega ekki verið nægilega viðbúin því.

Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag. Nú er verið að auka afköst dælingar og fituhreinsunar í vinnslunni. Við erum að láta kafa með útrásarlögninni og munum koma henni í lag."

Vinnslustöðvun í byrjun vikunnar var nýtt til að lagfæra núverandi búnað og byrjað er að hreinsa fjörurnar undir stjórn Vopnafjarðarhrepps.

"Við höfum falið verkfræðistofunni EFLU að gera úttekt á fráveitumálum okkar, útrás og fituhreinsun og óskað eftir því að þeir hefji vinnu við verkið sem allra fyrst.

Við biðjum íbúa Vopnafjarðar enn og aftur afsökunar á þessu. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag og hraða því ferli eins og hægt er.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.