Héraðsverk endurbyggir hluta Borgarfjarðarvegar
Héraðsverk á Egilsstöðum mun endurbyggja Borgarfjarðarveg á milli Eiða og Laufás. Um er að ræða 14,7 km langan hluta af veginum sem verður malbikaður.Greint er frá málinu á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að við opnun tilboða var Héraðsverk eitt um að bjóða í verkið. Tilboðið hljóðaði upp á 93,4% af áætluðum verktakakostnaði við verkið.
Áætlaður kostnaður nam rúmum 713 milljónum kr. nn tilboð Héraðsverks var upp á rúmar 666 milljónir kr. Fram kemur að verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en í september á næsta ári.