Hitinn kominn í yfir 20 stig eystra
Vel viðrar á Austfirðinga í dag og útlit er fyrir að svo verði áfram allra næstu daga. Hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í dag var á Egilsstaðaflugvelli upp úr hádeginu 21,7°C.Á Egilsstöðum mátti sjá léttklætt fólk á ferli og öll borð utanhúss við veitingastaði fullsetin þar sem íbúar tóku sér langt hádegi.
Víðar á Austurlandi er hitinn nálægt 20 stigunum, til að mynda á Brú á Jökuldal. Fleiri staðir gætu náð svipuðu hitastigi síðar í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Fleiri góðir dagar eru í vændum. Aftur er spáð yfir 20 stiga hita á morgun og sunnanátt og hlýindum fram yfir helgi.