Hótel Hallormsstaður er sóttkvíarhótel Austurlands
Hótel Hallormsstaður verður sóttkvíarhótel Austurlands. Þráinn Lárusson eigandi hótelsins segir að hann hafi orðið við óskum Sjúkratrygginga Íslands að láta hótelið í té undir þetta hlutverk.„Þetta hótel stendur nú ónotað vegna COVID þannig að það var sjálfsagt af minni hálfu að láta þeim það í té,“ segir Þráinn. „Þá ber að líta á að þetta er stærsta hótelið í fjórðungnum og því tilbúið að taka við fjölda einstaklinga ef svo ber undir.“
Allar líkur eru á að fyrstu einstaklingarnir komi á Hótel Hallormsstað á morgun úr Norrænu. Ferjan átti að leggja að bryggju á Seyðisfirði í dag en för hennar frestaðist vegna veðurs um sólarhring að því er segir á vefsíðu ruv.is.
Þráinn segir að rekstur hótelsins sem sóttkvíarhótels sé alfarið á vegum Rauða krossins og Securitas.
„Ég mun hinsvegar leggja til hótelstjóra sem verður tengiliður við Rauða krossinn á hótelinu og einnig starfsfólk til að sjá um þrif á herbergjum eftir notkun,“ segir Þráinn.
Aðspurður um hvort starfsfólk hans sé í aukinni hættu við vinnu á staðnum segir hann svo alls ekki vera.
„Ef sýking kemur upp kemur mitt starfsfólk ekki nálægt slíku. Þá verða það einhverjir sérfræðingar að sunnan sem annast þrifin,“ segir Þráinn.