Hringdi heim til Spánar eftir hjálp frá Seyðisfirði

ImageSpænskur ferðamaður hringdi til heimalands síns eftir hjálp því hann taldi sig týndan í Seyðisfirði um seinustu helgi. Hann hafði þá afþakkað aðstoð nærstaddra ferðalanga.

 

Ferðamaðurinn var kominn vel út með Seyðisfirði og var „í einhverju reiðuleysi“ að sögn lögreglunnar. „Hann var aldrei týndur eða í neinni hættu og vidi skki þiggja aðstoð annarra ferðalanga,“ sagði Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, í samtali við Agl.is.

Spánverjinn hringdi þess í stað heim til Spánar og þaðan var hringt í íslensku neyðarlínuna og beðið um hjálp fyrir hans hönd.

Lögreglan staðfesti að maðurinn hefði ekki verið allsgáður.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.