Hvetja Austfirðinga sem fara á höfuðborgarsvæðið til árvekni
Covid-19 smit greindist í gær með einstaklingi með lögheimili á Austurlandi. Viðkomandi er þó ekki staðsettur í fjórðungnum. Aðgerðastjórn hvetur þá sem þurfa til Reykjavíkur eða eru að koma þaðan til árvekni.Samkvæmt tölum frá Covid.is eru nú tvö virk smit á Austurlandi. Aðeins annar hinna smituðu er þó í einangrun á svæðinu, sá greindist við landamæraskimunum í síðustu viku.
Hitt tilfellið var staðfest í morgun en að því er fram kemur í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar á Austurlandi býr sá sem greindist nú ekki í fjórðungnum og því ekki í einangrun eystra.
Fram kemur að smitrakning hafi gengið vel en ekki er tekið fram í hvaða landshluta viðkomandi býr.
Aðgerðastjórnin vekur hins vegar athygli á áhyggjum almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra af stöðu Covid-faraldursins á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir að mikils vert sé að þeir sem þurfi suður hugi sérstaklega að einstaklingsbundnum smitvörnum og séu varkárir þegar komið sé þaðan.