Hvetja fjölskyldur til að verja vetrarfríinu eystra
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands beinir því til foreldra og forráðamanna að leggja ekki í langferðir í vetrarfrí grunnskólanna sem hefst á næstu dögum til að fyrirbyggja útbreiðslu Covid-19 faraldursins.Algegnt er að fjölskyldur nýti vetrarfríið til ferðalaga en aðgerðastjórnin hvetur til þess að því verði að þessu sinni varið á heimaslóðum og blanda saman inniveru og útivistar til leikja og virkrar samveru.
Skólastjórnendur munu í vikunni senda foreldrum og forráðamanna barna tilmæli í þessa vegu í gegnum upplýsingakerfið Mentor á nokkrum mismunandi tungumálum.
Í dag tóku gildi hertrar reglur þar sem meðal annars er kveðið á um grímuskyldu í verslunum, þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð. Aðgerðastjórn hvetur til að grímurnar séu notaðar almennt þótt skyldan sé ekki fortakslaus
„Höfum þetta einfalt, notum grímur í verslunum. Þannig einföldum við hlutina og gerum okkar ýtrasta sem fyrr til að fyrirbyggja smit.“
Enginn er með virkt smit á Austurlandi en þrír í sóttkví.