Íbúafundur á Seyðisfirði í dag
Haldinn verður íbúafundur vegna skriðumála á Seyðisfirði í dag klukkan 16:00.Magni Hreinn Jónsson, hópstjóri ofanflóða hjá Veðurstofu Íslands, fer þar yfir endurskoðun hættumats fyrir Seyðisfjörð.
Jón Kristinn Helgason, sérfræðingur á sviði skriðufalla og hættumats hjá Veðurstofunni, fer yfir vöktunar og mælakerfi á Seyðisfirði.
Fundurinn verður í bíósal Herðubreiðar en einnig sendur út í gegnum Facebook. Hægt verður að senda inn fyrirspurnir á meðan fundinum stendur.