Íbúar við Lambeyrarbraut efins um breytt skipulag
Staðfestingu nýs deiliskipulags fyrir Lambeyrarbraut á Eskifirði hefur verið frestað þar til haldinn hefur verið fundur með íbúum og hönnuðum. Íbúar hafa krafist skýrari svara í hvað fyrirhugaðar breytingar á götunni fela í sér.Breytingar eru þegar orðnar á götunni því við breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Eskifjarðar í ágúst í fyrra var samþykkt að breyta götunni í botnlangagötu. Það er meðal annars vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir í Lambeyrará, sem eru hafnar.
Nú liggur fyrir tillaga um að breyta götunni í vistgötu ofan Eskifjarðarskóla og bæta við einbýlishúsi á 650 fermetra lóð milli húsa númer 1 og 3, þannig nýja húsið yrði númer 1a. Gert er ráð fyrir þessari lóð í miðbæjarskipulaginu.
Íbúar við götuna hafa lýst efasemdum um þessi áform. Tólf þeirra skrifuðu undir erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar þar sem þeir fóru fram á að staðfestingu skipulagsins yrði frestað þar til málin hefðu kynnt betur. Að öðrum kosti íhugi þeir að leita til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem sé þeim þvert um geð en nauðugur kostur.
Í erindinu segjast íbúarnir í mikilli óvissu um hvernig gatan verði eftir breytingarnar, til dæmis hvaða áhrif það hafi að hún verði vistgata eða nýtt hús sem enn frekar þrengi að götunni.
Þeir segja að á fundu með embættismönnum sveitarfélagsins og fulltrúum úr nefndinni í apríl hafi komið fram að fullnaðarhönnun skipulagsins væri ekki lokið. Þess vegna vilji þeir fá hönnuðina á fund til að geta fengið um svör um hvernig leyst verði úr vandamálum sem skapist verði breytingarnar að veruleika.
Í bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá í síðustu viku kemur fram að skipulagið verði ekki staðfest fyrr en eftir fund íbúa með hönnuði sem haldinn verði í byrjun maí.