Játuðu brot á sóttvarnalögum
Tveir einstaklingar sem brutu gegn sóttvarnalögum á Austurlandi í síðustu viku, hafa játað brot sitt. Verið er að skoða hvort ákæra verði gefin út.Það var Austurfrétt sem fyrst greindi frá því síðasta þriðjudag að starfsfólk í verslunarmiðstöðinni Molanum á Reyðarfirði hefði talið sig þekkja tvo einstaklings sem komið hefðu þangað inn en átt að vera í sóttkví.
Verslunum þar var lokað, svæðið hreinsað og lögreglu gert viðvart.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að umræddir einstaklingar hafi játað brot sín og teljist málið því að fullu upplýst. Það verður sent til ákærusviðs lögregluembættisins til frekari afgreiðslu og ákvörðunar.