Jónína Rós: Byrjað á vitlausum enda

Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, styður ekki óbreyttar tillögur um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Þar hafi verið byrjað á vitlausum enda.

 

Image„Í stað þess að fara í stefnumótandi vinnu í heilbrigðismálum á landsbyggðinni með öllum hagsmunaaðilum er send niður kerfið tilkynning um hvað skuli gera,“ segir Jónína í samtali við Agl.is.

„Mér finnst að það þurfi að fara í þessa vinnu og búa til aðgerðaáætlun til einhverra ára um það hvernig megi ná fram hagræðingu og sparnaði. Mér finnst afar brýnt að dæmið sé sett upp allt til loka - samfélagsleg áhrif og atvinnuástand sé skoðað og aldrei komi til greina að leggja niður stóran hluta kvennastarfa í litlu samfélagi.“

Þær tillögur sem settar hafa verið fram, um fjórðungsniðurskurð á framlögum til Heilbrigðisstofunar Austurlands, segist Jónína ekki geta stutt.

„Ég get því ekki stutt þessar tillögur óbreyttar - en vona að allir aðilar geti fundið saman leið til að hagræða og spara því það verðum við að gera - en þar verður það sama að ganga yfir allt landið - íslensk þjóð þarf á öllu öðru að halda en sundrandi skilaboðum.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar