Kristmundur Stefán skipaður lögreglustjóri
Kristmundur Stefán Einarsson hefur verið skipaður lögreglustjóri á Austurlandi frá 1. nóvember næstkomandi. Kristmundur Stefán hefur starfað innan lögreglunnar víða um land í tæp 20 ár, lengst af á höfuðborgarsvæðinu.
Kristmundur hóf störf hjá lögreglunni árið 2007 og lauk námi við Lögregluskóla ríkisins árið 2009. Árið 2018 lauk hann meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands.
Hann hefur starfað sem lögreglumaður á Blönduósi, Selfossi, Þórshöfn og á höfuðborgarsvæðinu. Á árunum 2010-2017 starfaði hann sem lögreglumaður í almennri löggæslu við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og sem staðgengill varðstjóra frá 2017.
Kristmundur hefur verið aðstoðarsaksóknari við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu síðan árið 2018. Árið 2021 tók hann við stöðu teymisstjóra á ákærusviði embættisins og sinnti henni þar til hann tók við starfi aðalvarðstjóra við sama embætti. Þá hefur hann sinnt afleysingum fyrir embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum og embætti lögreglustjórans á Austurlandi.
Kristmundur Stefán hefur síðan í febrúar 2025 starfað sem aðalvarðstjóri og samhliða því aðstoðarsaksóknari við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Kristmundur hefur í starfi sínu sem aðalvarðstjóri hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu borið ábyrgð á að stýra 35 manna deild. Hann hefur átt frumkvæði að og stýrt fjölmörgum umbótaverkefnum hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, var sett tímabundið yfir embættið á Austurlandi 1. apríl síðastliðinn þegar Margrét María Sigurðardóttir, fyrrverandi lögreglustjóri, tók við sem forstjóri Mannréttindastofnunar Íslands. Kristmundur Stefán var meðal þeirra þriggja sem sóttu um starfið þegar það var auglýst í júní.