Kvíabólsstíg í Neskaupstað lokað næstu vikur
Framkvæmdir hefjast í dag við Kvíabólsstíg í Neskaupstað þar sem skipt verður um yfirborð vegarins og allar lagnir. Gatan verður lokuð fyrir almenna umferð frá og með deginum í dag og næstu vikur.Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir einnig að byrjað verður á því að rífa upp steypt yfirborð götunar, og í framhaldi af því verður farið í að skipta út vatns- og fráveitulögnum og eins strengjum í eigu RARIK. Þá mun Míla leggja ljósleiðara í götuna.
„Íbúar við Kvíabólsstíg hafa verið látnir vita af þessum framkvæmdum. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir á vefsíðunni.