Líneik Anna vill leiða lista Framsóknarflokksins

Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður, býður sig fram í 1. sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.


Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að hún hafi verið alþingismaður Norðausturkjördæmis 2013-2016 og 2017-2021, eftir að hafa starfað að sveitarstjórnarmálum frá 1998.

Á Alþingi hefur hún starfað í allsherjar- og menntamálanefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og  í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál. 

„Meðal baráttumála hennar eru jafnrétti og jafnræði íbúa landsins og þar með góðar samgöngur, bæði í raunheimum og netheimum.“ segir í tilkynningunni.

„Samgöngur eru lykill að tækifærum og árangri í samfélagsþróun. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er grundvöllur íslensks efnahagslífs og því  þarf samspil manns og náttúru að vera viðvarandi viðfangsefni stjórnmálanna. Markvissar aðgerðir í umhverfismálum eru mikilvægar og þurfa að byggja á upplýstri umræðu. Líneik er tilbúin að fást á við öll þau verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir hverju sinni hvort sem það eru náttúruöflin, farsóttir eða eitthvað allt annað. Eitt stærsta verkefnið framundan er að fjölga störfum og styrkja atvinnulífið í kjölfar COVID.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.