Litahlaupið á Egilsstöðum í fyrsta sinn í sumar
Litahlaupið (The Color Run) verður haldið á Egilsstöðum í fyrsta sinn í sumar, laugardaginn 7. ágúst. Frá árinu 2015 hafa yfir 50.000 manns tekið þátt í litahlaupinu í Reykjavík og Akureyri þar sem jafnan hefur orðið uppselt á viðburðinn.Litahlaupið er 5km löng skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem þátttakendur eru litaðir með litapúðri á hlaupaleiðinni og við endamarkið verður mikil fjölskylduskemmtun með litapúðurssprengingum.
Á Egilsstöðum verður einnig boðið upp á 3km vegalengd fyrir þá sem kjósa að hlaupa styttri vegalengd en þó verður hlaupaleiðin hönnuð þannig að þeir sem ákveða að hlaupa 3km missa ekki af litasvæðunum í brautinni.
"Það er okkur mikið gleðiefni að tekist hafi að koma þessum ágæta fjölskylduviðburði á hér á Egilsstöðum í sumar. Við vitum að Austfirðingar vilja njóta lífsins í sumar og okkur veitir ekki af því að skreyta líf okkar með litum, tónlist, dansi og hlaupi í ágúst," segir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings í tilkynningu um hlaupið.
"Egilsstaðir hafa verið lengi á kortinu hjá okkur svo það er okkur sönn ánægja að geta loksins farið með The Color Run á Austurland. Við erum sennilega öll orðin svolítið spennt fyrir að hleypa smá gleði inn í líf okkar og við ætlum að koma með litríksta viðburð sumarsins á Egilsstaði," segir Ragnar Már Vilhjálmsson, skipuleggjandi The Color Run á Íslandi
Miðasala í The Color Run á Egilsstöðum hefst með sérstakri forsölu frá fimmtudegi til mánudags á tix.is þar sem miðaverð verður aðeins 4.000 kr. fyrir staka miða og 14.000 kr. fyrir fjögurra miða fjölskyldupakka