Línubáturinn Hafdís keyptur til Eskifjarðar
Eskja hf. á Eskifirði hefur keypt línubátinn Hafdísi GK 118 frá Grindavík en hann var í eigu útgerðarfélagsins Völusteins í Grindavík.Áætlað er að báturinn hefji línuveiðar frá Eskifirði í ágústmánuði eða byrjun septembermánaðar næstkomandi að því er fram kemur á vefnum mar.is. Hafdís verður aðallega gerð út á þorsk og ýsu. Báturinn er 30 brúttórúmlestir og smíðaður í Hafnarfirði árið 1999 og búinn línubeitningavél. Hafdís mun halda nafni sínu og fá skráningarnúmerið SU-220.