Loðnuleit hafin að nýju út af Austfjörðum

Nú um helgina var haldið aftur til mælinga á stærð loðnustofnsins á uppsjávarveiðskipunum Ásgrími Halldórssyni SF og Polar Amaroq. Líkt og í fyrri mælingum eru þrír sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar í hvoru skipi.


Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að Bjarni Ólafsson AK er jafnframt með í verkefninu með það hlutverk að afmarka dreifingu loðnunnar til að flýta fyrir mælingum.

Aðdragandi mælinganna er sá að fréttir bárust á laugardeginum frá togveiðiskipum um loðnu í kantinum út af miðjum Austfjörðum. Í kjölfarið fór uppsjávarveiðskipið Víkingur, sem var á leið til löndunar á Vopnafirði af kolmunnamiðunum, yfir svæðið og staðfesti að þetta væri einhvert magn sem væri að sjá við kantinn frá Hvalbakshalla og allavega um 50 sjómílur þaðan í norður.

Stefnt er á að ná mælingu þarna á næstu dögum og fá m.a. mat á hvort þetta sé hrein viðbót við síðustu mælingar frá því í byrjun janúar eða þetta sé hluti af þeirri loðnu sem fannst norður af Langanesi á þeim tíma og gengið þetta langt í suður síðan þá.

Framhald þessara mælinga fyrir austan verður metið á næstu dögum með tilliti til veðurs og loðnumagns á svæðinu, að því er segir í tilkynningunni.

Mynd: Hér sést leitarsvæðið. Rauða línan er Bjarni Ólafsson AK.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.