Lokað um Hvalnes – og Þvottárskriður vegna umferðaróhapps
Veginum um Hvalnes- og Þvottárskriður var lokað um klukkan tvö í dag vegna umferðaróhapps.Húsbíll fór út af veginum við Hvaldalsá. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er einnig afar hvasst í skriðunum. Þess vegna er ekki ljóst hve lengi vegurinn verður lokaður.